Bloggarar:
Gagnagrunnurinn

Oddur
Allah o akhbar
Una
Forsetinn
Valinkunnur andans maður
Maack
Arent
Bragi
Neðraím
Björkin
Bjarney
Jönsson
Fífa
Kennarablogg
Frikki Steinn
Ballerino
Garðarsdöttir
Herra Garðarsdöttir
Norðdahl
Snowbear
Loveýsa
Hreinberg
Guðný
Edwalds & Buch
Jakob hinn Hvíti
Særún
Elín Lóa

Formaðurinn mælir með:
Kirkjan
Páfinn
Handrit
Snillingar
Welcome to Royston Vasey
... Royston líka
The Hunger site
The Child Health site
The Rainforest site
The Animal rescue site
The Breast cancer site

Forma?urinn talar!


Heim Gamalt Samband

miðvikudagur, september 17, 2003 :::
 
Formaðurinn hefur lagst til hinstu hvílu en Hemúllinn tekið við. http://www.hemullinn.blogspot.com

::: posted by Mao at 00:38,

mánudagur, júlí 21, 2003 :::
 



Síðasta helgi var öllu skemmtilegri en fyrsta helgin í júlí og það þurfti ekkert færeyskt til (þetta var meira að segja vinnuhelgi hjá mér, samt betri).
Á föstudag tölti ég á Mokka eftir vinnu. Þar naut ég félagsskapar Jóa litla, Dodda og Ara Eldjárns (Nei, hann var aldrei forseti!). Öll samtöl voru þó nokkuð í hlekkjum því mest allan tímann hlustuðum við á litla bróður Ara lesa Velvakanda Morgunblaðsins og meihæðnar athugasemdir hans við skrif gamla fólksins. Þó komst Jói að með sorglega lífsreynslusögu:

Sagan: Jói lærði aldrei að hjóla.

Skýringin: Mamma hans var einstæð móðir og kunni ekki að taka hjálpardekkin af BMX-inum hans. Ergo Jói lærði aldrei að hjóla án þeirra.

Ég held að þetta sé efni í góða kvikmynd. Haley Joel Osmont gæti leikið Jóa, Meryl Streep mömmu hans Jóa og Kevin Spacey eða Lou Diamond Phillips gæti talað fyrir hjólið. (Ef þetta var svartur BMX gæti Haddaway tekið að sér hlutverkið og þetta gæti verið "early 90's" söngvamynd). Pæling.

Allavega enduðum við Jói í félagskap Braga Páls Sigurðarsonar, Sigurðar Arents ofl. En Bragi hafði nælt sér í breskan DJ að nafni Ben. Téður mynd var nýkominn frá Keflavíkurflugvelli og þurfti út á Reykjavíkurflugvöll kl 6:00. Hann var því með farangurinn og allt niðrí bæ og ákvað að þyggja 6 tíma kynningu okkar á Íslandi.
Hún hófst með fylleríi á Austurvelli þar sem við kendum honum Jameson-lagið, sögðum honum hvaða perlur Íslands hann þyrfti að heimsækja (t.d. Sandgerði – Leoncie er nú okkar virtasti listamaður) og sögðum honum frá frægðum Íslendingum (t.d. söguna af því þegar Jón Páll fékk leið á því að vera sterkasti maður í heimi, flutti til Rómar og gerðist páfi. “That’s why John Paul is still so fit, because he’s the strongest pope in history”.) Við lentum líka á brjálæðingi sem var með luger-byssu í vasanum og benti okkur á það sem hafði greinilega farið framhjá íslenskum stjórnvöldum: við hefðum getað rústað þorskastríðunum ef við hefðum bara látið Landhelgisgæsluna sökkva bresku togurunum.hmmmm.....
Við flúðum þegar hann sagðist geta skotið okkur alla. Við gáfum Ben bara eina Bæjarins bestu í staðinn, sýndum honum MR (og svo 500 kallinn;), Laugaveginn, útskýrðum fyrir honum íslenskt kvenfólk og hvernig það væru bara hommar í vessló, öll basic atriðin um Reykjavík. Enduðum svo á Dillon þar sem hamingjusamur Bretinn varð vitni að al-íslenskum slagsmálum og tilkynnti okkur að hann ætlaði að flytja hingað strax í haust svo við bókuðum hann á TeBó. Á Laugardagskvöldið fór ég svo með Jóa og Dodda (og Þorbjörgu jú líka) heim til Braga í Mosó. Ölvun var upphaflega ekki inn í myndinni en Bragi lumaði á líters vodka flösku og Oddur Broddi var með Tequila. Þeir fórnuðu flöskunum sínum í drykkju 21 og ég tapaði mjög grimmt og endaði því mjög drukkinn með ungum stúlkum á Hverfisbarnum.


Bóbó í góðum félagsskap í USA


Annars héldum við Bragi og Frikki óopinberan fund Ræðuliðs 3.A (bangsinn Bóbó er staddur í Ameríku um þessar mundir að túra sem “motivational speaker”). Allir viðstaddir meðlimir ræðuliðsins höfðu mikinn áhuga á að endurvekja starf þess og var því ákveðið (eftir símafund við Bóbó – hann er nú stjarnan í liðinu) að skora á Sólbjartsmeistarana, 4.B, í keppni um leið og skólinn byrjar. Framtíðarstjórnin tók vel í þessa hugmynd, að starta ræðuárinu með einvígi milli Sólbjartsmeistaranna og goðsagnarinnar 3.A (það má kannski taka það fram þeim sem ekki þekkja til fróðleiks að enginn meðlima Ræðuliðs 3.A er aktúelt í 3.A). Því eru hjólin byrjuð að snúast, svo framarlega sem 4.B gugnar ekki...

Af þessu tilefni ætla ég að hlaupa yfir sögu Ræðuliðs 3.A:

Saga Ræðuliðs 3.A
Veturinn 2001-2002 koma Bragi Páll Sigurðarson (núverandi meðlimur ræðuliðs FB) og Friðrik Steinn Friðriksson (núverandi mitt á milli 4.A og 5.A) upp að mér í kjallara Casae Novae og spyrja hvort ég vilji vera liðsstjóri í ræðuliðinu þeirra. Þeir séu að fara að keppa á morgun og vanti liðsstjóra svo afhverju ekki Markús fyrst hann var svona hendi nærst í Cösu? Formaðurinn sló til og án þess að taka það mjög alvarlega né undirbúa sig e-ð að viti mættum við mínum gamla bekk 6.A. Það lið var skipað eðalfólkinu (ehhh...nei!) Páli Heimissyni (leiðinlegasta manni í heimi), Arndísi Þórarinsdóttur, Helgu Hafliðadóttur og e-m fjórða aðila (koma reyndar ekki nema tveir til greina vegna sögulegs fámennis í bekknum). Umræðuefnið var Gamalt fólk og við vorum fylgjandi. Málflutningur okkar var þó skítlegur og gekk aðallega út á ærumeiðingar gegn liðsmönnum 6.A, enda var það eina markmiðið þá með þátttöku 3.A: að níðast á Páli Heimissyni í pontu. Í lok keppninnar tilkynntu dómarar að bangsinn Bóbó væri ræðumaður skammdegisins en að 6.A hefði unið. Eftir að farið hafði verið yfir dómarablöðin aftur kom í ljós að það var vitlaust talið. 3.A vann. Lögfræðingarnir í 6.A reyndu að hnekkja úrskurðnum á þeim forsendum að það væri búið að tilkynna að þau hefðu unnið og þá væri ekki aftur snúið burtséð frá raunverulegum úrslitum. En við komumst áfram og þá hljóp metnaður í menn...

Í næstu keppni mættum við e-m 4.bekk sem bjó yfir kröftum Hilmis Jenssonar, núverandi Orator Scholae og meðlims ræðuliðs 4.B (sem við erum að skora á). Umræðuefnið var Kántrý og við vorum aftur fylgjandi. Það er skemmst frá því að segja að við unnum aftur og Bragi og Bóbó voru jafnir sem ræðumenn skammdegisins. Svo kom legend-ið...


Hommi að hvíla sig


Þriðja keppni okkar var gegn þáverandi bekknum mínum 5.A. Umræðuefnið var Eru hommar stólar? og vakti að vonum mikla athygli. Þetta var án efa hápunktur ferils okkar og skemmtilegasta ræðukeppni sem Formaðurinn hefur tekið þátt í. Við vorum enn á ný fylgjandi, sem flestum þótti ónýtur málstaður en svo reyndist ekki. Við mættum með hendur fullar af rökum og gögnum, Dr. Nusle mætti með glærur sem staðfestu málstað okkar en á meðan gerði lið 5.A ekki annað en að kalla Formanninn Júdas. Við unnum og settum spor okkar í ræðusöguna.

framhald síðar...

hmmmm...önnur helgi er svo liðin og ekki svo slæm. Á föstudag héldum við Hannes Þórður Þorvaldsson partý í sumarbústað Hrafns Gunnlaugssonar í Heiðmörk. Bústaðurinn er vel búinn, þar er m.a. kirkja sem Krummi reisti fyrir e-a af stórmyndum sínum. Hún er víst vel sótt af djöfladýrkendum yfir vetrarmánuðina, en þeir létu okkur vera á föstudaginn. Mikið var drukkið, þá sérstaklega í drykkjuleiknum "Hannes", sem virtist mjög einfaldur en var það svo alls ekki þegar kom að því að leika hann. Síðan endaði það kvöld e-ð skrautlega, en mörg okkar ákváðu að spara okkur taxaferðina heim og gista.
Á laugardagskvöldið fór ég með jóa, Dodda, Þorbjörgu og "Sigríði" á tónleika með Ragnheiði Gröndal. Voða svöl stelpa. Hápunkturinn var þó að hitta Sveinbjörn Thorarenssen sem var á sínu fyrsta fylleríi!
Og mikið rosalega var hann fullur. Hann var að kvarta undan stóru barkakýli sínu, sagðist ætla í lýtaaðgerð og tilkynnti svo að ég ætti að framkvæma hana, hann vildi mig sem lækninn sinn. Ég benti honum á að ég væri, og yrði aldrei, læknismenntaður og væri sennilega síst treystandi fyrir eggvopnum. En það þótti honum í góðu lagi, hann þekkti mig og ég hlustaði á GusGus. Það var nóg. Minnið mig á að bóka aldrei skurðaðgerðir undir áhrifum áfengis.

Formaðurinn spillir bókarendinum
Bókarendi dagsins er ekki spillt af hvötinni til að skemma (aldrei þessu vant), heldur til þess að hjálpa, því bók dagsins er Leiðin til lífshamingju eftir Dalai Lama. Nú geta lesendur sem eru að leita að hamingjunni sloppið við að lesa 240 bls og farið beint í niðurstöðuna, leiðina til lífshamingjunnar:

Byrjið á að anda þrisvar sinnum og hafið hugann við öndunina og ekkert
annað. Einbeitið ykkur að því að anda að ykkur og frá, þrisvar sinnum.


Hljómar einfalt. Happiness here I come!

The Anathology of Formaðurinn spillir bókarendinum!

------------------------------------------------------------------
Formaðurinn fann eintak af bókinni Bambi og hefur ákveðið að spilla endinum fyrir öllum spenntum lesendum:

He went on, and vanished in the forest.
------------------------------------------------------------------
Bókin sem Formaðurinn ætlar að spilla í dag er spennusagan Grafarþögn eftir Arnald Indriðason:

-Ég kem með ber í haust. sagði Mikkelína. Í haust. Þá kem ég með berin.

Það er þá á hreinu. Mikkelína dó ekki og berin vaxa enn. Gaman.
------------------------------------------------------------------
Í dag ætlar Formaðurinn að spilla bókinni Desert Splendor eftir Samantha Hughes. Bókin er úr flokkinum A Candlelight Ecstasy Romance:

Loneliness was something they both understood in the depths of their hearts. The coyote's cry was a benediction. It confirmed how very precious their love was.

Váá!! Ég heyri klingja í Nóbelsverðlaunum...(Þ.e.a.s. ef Nóbelsverðlaunin væri í svona borða um hálsin, eins og fótboltamedalíur...og þau væru nokkur saman, eða e-ð)
------------------------------------------------------------------
Og nú fer illa fyrir öllum 4. bekkingunum sem bíða spenntir eftir því að lesa hvernig Laxdæla endar:

Og lýkur þar nú sögunni.

Þar hafið þið það, örlög Bolla alveg á hreinu.
------------------------------------------------------------------
Bókin sem hann spillir í dag er ný og mjög umtöluð bók...Íslenska orðabókin frá Eddu Miðlun-Útgáfu:

öxulþungi KK. sá hluti þyngdar ökutækis sem kemur á hvorn (hvern) öxul
------------------------------------------------------------------
Og svo e-ð fyrir börnin. Bók dagsins í dag er Vaskur gerist brunavörður:

Allt sem getur valdið eldsvoða verður að umgangast af mikilli varúð. Annars geta nefnilega óhöppin orðið.

Þar hafið þið það krakkar. Bensín, eldspýtur og rúmið þeirra mömmu og pabba er ekki góð blanda.
------------------------------------------------------------------
Bók dagsins er "Grín er gott mál" eftir Bjarna Bergmann og Guðjón Eiríksson:

Hefurðu heyrt um...-prestinn sem fékk andann yfir sig?

jájá...grín er greinilega ekki þeirra mál.
------------------------------------------------------------------
Bók dagsins er Eymd (Misery) eftir Stephen King í þýðingu Karls Birgissonar:

Lovell, Maine: 23. september, 1984/Bangor, Maine: 7. október, 1986: Svona er þá saga mín.

Ég fæ hroll...
------------------------------------------------------------------
Og í tilefni af litlu jólunum ætlar formaðurinn að spilla endi bókarinnar 177 leiðir til að koma konu í 7. himin eftir Margot Saint-Loup:

Láttu stjórnast af lostanum sem hún vekur með þér, betra ástarlyf er ekki á markaðnum.

Og til gamans ætlar formaðurinn að birta hér eitt ráð úr bókinni: (Nota bene: þetta er ekki fyrir börn né teprur)

59. þektu geirvörtur hennar og sköp með dálitlu af þeyttum rjóma. Sleiktu hana, bragðaðu á henni. Það er líka hægt að nota hunang eða sultu. Salt eða sætt, allt er það spurning um smekk. Forðastu samt síldarkæfu, ansjósusmjör og hvítlauksolíu sem er aðeins of feitt og þú gætir orðið virkilega andfúll.

Ja hérna! Gæti virkilega e-m dottið í hug að smyrja kvenmannssköp með síldarkæfu og eta það?!
------------------------------------------------------------------
Formaðurinn spillir bókarendi enn á ný. Meistarastykkið Angelique and the Demon eftir Sergeanne Golon:

The following day, whch was the second of the month of November, under a clear, cold, cloudless, winter sky, they passed Cape Gaspé and entered the mouth of the Saint Lawrence.

Ástin er yndisleg.
------------------------------------------------------------------
Bók dagsins/vikunnar/eitthvað er Eyðimerkurdögun eftir Waris Dirie:

,,Halló, Afríka! Hvernig hefur þú það? Mér líður vel og vona það [sic] þér líði vel líka."

Minnir mig á Tal auglýsingu með Jóni Gnarr...
------------------------------------------------------------------
Í dag er það Hringadróttinssaga...á norsku! Ringenes Herre:

Han trakk pusten dypt. ,,Ja, så er jeg hjemme igjen, da," sa han.

Djöfull...! Fróði deyr!!!
------------------------------------------------------------------
En byrjum á bókarendi dagsins. Fyrir valinu varð hin bráðskemmtilega Spurningakeppnin okkar eftir Guðjón Inga Eiríksson og Jón Sigurjónsson.

60. Hvaða tala er helmingi minni en áttatíu?
60. Fjörutíu.

------------------------------------------------------------------


HISTORY'S GREAT PERSONS RECONSIDERED by Tim Carvell

ALEXANDER GRAHAM BELL

When it comes to phrases spoken on momentous occasions, "Watson, come here, I need you" is pretty lousy. But at least it's better than the alternative: "Watson, stay there. I don't need you. I've found someone else, and couldn't bear to tell you in person. Hence, my invention of this device."



::: posted by Mao at 19:01,

mánudagur, júlí 07, 2003 :::
 



Her sæst hvat F.R. fæst við, hvussu føroyska ferðavinnan er skipað, hvørjar kunningarstovur eru í Føroyum, og hvat tær hava til endamáls.
Jæjajæja. Skellti mér á Færeyska daga á Ólafsvík um helgina. Héldum að það yrði svona temmilega rólegt, hversu hræðilegir geta Færeyingar verið? Þetta er fólkið sem stofnaði Rúmfatalagerinn og færði okkur Brand Enna. En 7.000 aðrir Íslendingar sáu sér sama leik á borði svo þarna skapaðist e-r Eldborgar-stemmning. Amazeen og litla lambið hann Gunnar Eyþórs voru lamdir í spað og e-ð átti að berja alla MR-inga. Gaman. En ég vann Jens í Yatzi og rústaði Jóhanni Alfreð í Idiot...hmmm...hljómar eins og þetta hafi verið stuð kvöld.

Meira síðar...

Vegna mikilla eftirspurna (eeehhh...nei!) hefur Formaðurinn ákveðið að endurvekja þáttinn Formaðurinn spillir bókarendinum. Og í tilefni af því (og vegna þess hvað bloggið er e-ð bilað) birta yfirlit yfir eldri bókarenda sem hann hefur spillt fyrir spenntum lesendum, eins konar anathologiu yfir bókarenda. Hvur veit nema þetta komi allt út í þykkri bók e-n daginn (eeehhh...nei!).

En byrjum á bókarendi dagsins. Fyrir valinu varð hin bráðskemmtilega Spurningakeppnin okkar eftir Guðjón Inga Eiríksson og Jón Sigurjónsson.

60. Hvaða tala er helmingi minni en áttatíu?
60. Fjörutíu.


Ætli Gettu betur strákarnir okkar hafi vitað þetta? En hér byrjar:

The Anathology of Formaðurinn spillir bókarendinum!

------------------------------------------------------------------
Formaðurinn fann eintak af bókinni Bambi og hefur ákveðið að spilla endinum fyrir öllum spenntum lesendum:

He went on, and vanished in the forest.
------------------------------------------------------------------
Bókin sem Formaðurinn ætlar að spilla í dag er spennusagan Grafarþögn eftir Arnald Indriðason:

-Ég kem með ber í haust. sagði Mikkelína. Í haust. Þá kem ég með berin.

Það er þá á hreinu. Mikkelína dó ekki og berin vaxa enn. Gaman.
------------------------------------------------------------------
Í dag ætlar Formaðurinn að spilla bókinni Desert Splendor eftir Samantha Hughes. Bókin er úr flokkinum A Candlelight Ecstasy Romance:

Loneliness was something they both understood in the depths of their hearts. The coyote's cry was a benediction. It confirmed how very precious their love was.

Váá!! Ég heyri klingja í Nóbelsverðlaunum...(Þ.e.a.s. ef Nóbelsverðlaunin væri í svona borða um hálsin, eins og fótboltamedalíur...og þau væru nokkur saman, eða e-ð)
------------------------------------------------------------------
Og nú fer illa fyrir öllum 4. bekkingunum sem bíða spenntir eftir því að lesa hvernig Laxdæla endar:

Og lýkur þar nú sögunni.

Þar hafið þið það, örlög Bolla alveg á hreinu.
------------------------------------------------------------------
Bókin sem hann spillir í dag er ný og mjög umtöluð bók...Íslenska orðabókin frá Eddu Miðlun-Útgáfu:

öxulþungi KK. sá hluti þyngdar ökutækis sem kemur á hvorn (hvern) öxul
------------------------------------------------------------------
Og svo e-ð fyrir börnin. Bók dagsins í dag er Vaskur gerist brunavörður:

Allt sem getur valdið eldsvoða verður að umgangast af mikilli varúð. Annars geta nefnilega óhöppin orðið.

Þar hafið þið það krakkar. Bensín, eldspýtur og rúmið þeirra mömmu og pabba er ekki góð blanda.
------------------------------------------------------------------
Bók dagsins er "Grín er gott mál" eftir Bjarna Bergmann og Guðjón Eiríksson:

Hefurðu heyrt um...-prestinn sem fékk andann yfir sig?

jájá...grín er greinilega ekki þeirra mál.
------------------------------------------------------------------
Bók dagsins er Eymd (Misery) eftir Stephen King í þýðingu Karls Birgissonar:

Lovell, Maine: 23. september, 1984/Bangor, Maine: 7. október, 1986: Svona er þá saga mín.

Ég fæ hroll...
------------------------------------------------------------------
Og í tilefni af litlu jólunum ætlar formaðurinn að spilla endi bókarinnar 177 leiðir til að koma konu í 7. himin eftir Margot Saint-Loup:

Láttu stjórnast af lostanum sem hún vekur með þér, betra ástarlyf er ekki á markaðnum.

Og til gamans ætlar formaðurinn að birta hér eitt ráð úr bókinni: (Nota bene: þetta er ekki fyrir börn né teprur)

59. þektu geirvörtur hennar og sköp með dálitlu af þeyttum rjóma. Sleiktu hana, bragðaðu á henni. Það er líka hægt að nota hunang eða sultu. Salt eða sætt, allt er það spurning um smekk. Forðastu samt síldarkæfu, ansjósusmjör og hvítlauksolíu sem er aðeins of feitt og þú gætir orðið virkilega andfúll.

Ja hérna! Gæti virkilega e-m dottið í hug að smyrja kvenmannssköp með síldarkæfu og eta það?!
------------------------------------------------------------------
Formaðurinn spillir bókarendi enn á ný. Meistarastykkið Angelique and the Demon eftir Sergeanne Golon:

The following day, whch was the second of the month of November, under a clear, cold, cloudless, winter sky, they passed Cape Gaspé and entered the mouth of the Saint Lawrence.

Ástin er yndisleg.
------------------------------------------------------------------
Bók dagsins/vikunnar/eitthvað er Eyðimerkurdögun eftir Waris Dirie:

,,Halló, Afríka! Hvernig hefur þú það? Mér líður vel og vona það [sic] þér líði vel líka."

Minnir mig á Tal auglýsingu með Jóni Gnarr...
------------------------------------------------------------------
Í dag er það Hringadróttinssaga...á norsku! Ringenes Herre:

Han trakk pusten dypt. ,,Ja, så er jeg hjemme igjen, da," sa han.

Djöfull...! Fróði deyr!!!
------------------------------------------------------------------


HISTORY'S GREAT PERSONS RECONSIDERED by Tim Carvell

GERALD FORD

In pardoning Richard Nixon, Gerald Ford claimed that he was helping to end "America's long national nightmare". But perhaps his actions were simply a way of foregoing what would, in the short term, be extraordinarily difficult, but might in the long term have been beneficial for the country — that is, a thorough airing of the Nixonian dirty laundry. Perhaps a better solution might have been to take Nixon aside, press a wad of bills into his hand, and whisper, "You have 48 hours to make it to Canada. Now go, run like the wind!"


::: posted by Mao at 21:22,

þriðjudagur, júní 24, 2003 :::
 


Í nótt er Jónsmessunótt. Í tilefni af því fór ég ásamt góðu fólki (MCann-Ericsson) í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í þeirri von að ég myndi heyra kýr tala. Þjóðsagan segir að ef maður heyrir kýr tala á Jónsmessunótt sturlist maður. Ég er sturlaður fyrir, og vegna reynslu minnar á stærðfræðideild man ég eftir fyrirbæri sem kallast tvöföld neitun. Ergo gerði ég ráð fyrir að ég gæti endurheimt glóruna ef ég heyrði Búkollu gera e-ð annað en að baula. Þetta var fýluferð því ekki sögðu þær orð. Ég stóð lengi fyrir framan Guttorm, langaði að spyrja hann hvort að Guðni Ágústsson kyssti vel, en allt kom fyrir ekki, helvítis hlunkurinn stautaði ekki upp orði. Ekki sá ég heldur selina skipta um ham né (lofsamlega) nokkurn velta sér nakinn upp úr dögginni. Aftur á móti hitti ég Björn Berg sem hefur gefið upp hlutverk Prins Lu fyrir æðri(?) stöðu álfakonungs með rjómatertu í andlitinu. Hann bauð okkur á burtreiðar og reið svo út í sólarlagið á tréhesti. Hver segir svo að stúdentspróf úr vessló færi manni ekki aukin atvinnutækifæri?
Svo fékk ég að sitja í hringekju eftir að hafa svarið það að ég tryði á álfa. Ingunn Hreinberg með vængi og jólaskraut á priki lagði mér vo lífsreglurnar í þessum undraheimi. Ég er sannfærður um það að starfsfólki Garðsins hefur verið gefin e-r ólyfjan í upphafi vaktarinnar, í.þ.m. hef ég ekki séð svona hegðun síðan ég var með M.D. Norðdahl í Amsterdam. Hápunkturinn var þó óneitanlega þegar ég niðurlægði mig í Vísindatjaldinu þegar ég gat ekki last, það sem virtist, mjög einfalda gestaþraut.
Note to self: "Gera krossgátur og gestaþrautir bara í einrúmi. Þetta er hættulegt sport."

HISTORY'S GREAT PERSONS RECONSIDERED by Tim Carvell

JOAN OF ARC

The tale of Joan of Arc is one of breathtaking faith: She heard the voice of God, and led an army for Him, refusing to renounce her views even unto burning at the stake. But perhaps it was not God's voice at all. Perhaps it was her mischievous younger brother, Hedric of Arc, hidden behind a tree, perpetrating a prank that got *way* out of hand.


::: posted by Mao at 01:46,

þriðjudagur, júní 17, 2003 :::
 



Í dag eru 59 ár síðan við fengum sjálfstæði frá Dönum og óska ég því öllum Íslendingum, líka Önundi Páli Ragnarssyni, til hamingjum með það. Verst er að við höfum ekki enn fengið sjálfstæði frá Bandaríkjunum...en það kemur vonandi fljótlega.
Mikið er þessi dagur samt e-ð sorglegur. Ræðumaður Íslands hélt yfir mér ræðu um það afhverju þetta væri hræðilegur dagur, og það var mikið til í því. Það sem einkennir þennan dag eru rigning; básar þar sem verið er að selja hluti á okurverði, hluti sem engum myndi detta í hug að kaupa á öðrum tíma ársins (hvernig tengjast risavaxin snuð eða Dominos pizzusneiðar sjálfstæðisbaráttu Íslendinga?); ofurölvun smákrakka; slagsmál og eini votturinn um þjóðerniskennd er annars vegar litlu fánarnir sem þó eru að tapa í baráttunni fyrir gasblöðrunum og svo hins vegar það þegar 300 íslenskir krakkar ákveða að berja 4 tælenska stráka. Væri Jón Sigurðsson á lífi myndi hann pottþétt sitja á Arnarhóli með landabrúsa og candyfloss og hrópa: "Ég er svo fullur, langar e-m að koma heim að ríða?!"

HISTORY'S GREAT PERSONS RECONSIDERED by Tim Carvell

WINSTON CHURCHILL

If one looks back on the great speeches of the century, perhaps the greatest was Winston Churchill's "We will fight them" speech. With mere words, Churchill managed to inspire an entire nation, giving them the moral courage to persevere against what must have seemed insurmountable odds. Consider, then, how different the course of history might have been, had Churchill not in fact delivered his message via radio, but instead had made a flyer, on his computer, and then had printed it using a cheap bubble-jet printer, hand-feeding each page. That might have taken a very long time.


::: posted by Mao at 16:23,

laugardagur, júní 07, 2003 :::
 



Jájájá, bölvuð laugardagsþynnka og hreingerningar í þokkabót. Furðuleg stemmning í gær. Bauð nokkrum vinum í chillað fyllerí upp í stofu þar sem m&p fóru útúr bænum en litla systir ákvað víst að halda partý fyrir sína vini á sama tíma svo húsið fylltist af 15-17 ára blindfullum gelgjum. Ræðumaður Íslands virtist þó fíla það vel og tók hann Aspelund, nemanda ársins, fyrir. Vaknaði áðan þunnur, er ennþá á Álafoss náttsloppnum mínum að reyna að þrífa húsið, þarf að reykræsta allt því fólk fékk að reykja inni. Verst var þó að "e-r" reyktu í svefnherbergi foreldranna en allavega eru allar hurðir og allir gluggar opnir upp á gátt í Reynigrund 19 (eins gott að engir óheiðarlegir menn lesi þetta). Svo held ég að mér hafi tekist að drepa Rainbow ryksuguna góðu :(

Annars ritar Hreinberg um Eurovision á bloggi sínu og talar um rök mín fyrir því afhverju "Kiss, kiss" með Holly Valance og tyrkneska Eurovision lagið minntu hvert á annað. E-ð virðist hún misskilja mig. Ég átti við að popptónlist frá Asíu-löndum hefur oft mjög ákveðinn hljóm. T.d. má nokkuð greinilega þekkja indverska popptónlist á hljómnum, og sama má segja um mesta popptónlist frá Mið-Austurlöndum. Popptónlist og poppmenning almennt er allt annars eðlis í þessum löndum en á Vesturlöndum eins og Íslandi og Írlandi (sem Hreinberg nefnir sem dæmi). Þar hefur poppmenningin ekki tröllriðið öllu og er ennþá á frumþroskastigi. Hún hefur ekki þróast út í margar og fjölbreyttar greinar eins og á Vesturlöndum og þess vegna er ennþá svona mikill samhljómur í henni. Því er ekki nema eðlilegt að tvö popplög frá Tyrklandi gætu minnt aðeins hvort á annað, ég tala nú ekki um eftir vinsældir "Kiss, kiss" svo sennilegt er að Tyrkir hafi hugsað "Hey! Þetta virðist virkar.". Svo minnist Hreinberg á að Sigur Rós, Björk og gusgus syngi ekki um stelpuna sem þeir negldu á Þjóðhátíð. En þú sérð heldur ekki Sigur Rós, Björk eða gusgus keppa í Eurovision. Eurovision lögin eru ekki rjóminn af því besta í tónlistargeiranum og þessi keppni varla mikill mælikvarði á hvernig tónlist og menning er almennt í dag.
Ég er samt ekki að verja tyrkneska lagið, sem var lélegt (var e-ð gott lag?) og ég er sammála Hreinberg að stór hluti tónlistar í dag hljómar eins og sama lagið. Það vantar kannski ekki frumleikann en hann dreifist alls ekki jafnt á alla aðila og þeir sem hafa hann njóta sjaldnast mikillar almenningshylli. Held að staða tónlistar í dag segi meira um samfélagið heldur en tónlistarmennina. Það úir og grúir af góðri og frumlegri tónlist en pöpullinn vill samt í flestum tilfellum sama heilalausa einfaldleikann. Sorglegt.

HISTORY'S GREAT PERSONS RECONSIDERED by Tim Carvell

SOLOMON

Sure, everybody brings up the baby-slicing as the prime example of the wisdom of Solomon. But what nobody ever mentions was that that was his solution to everything. Contract dispute? Divorce proceeding? Jaywalking arrest? Hey, let's cut this baby in half and see if that settles things! Solomon was kind of a nut.





::: posted by Mao at 16:29,

föstudagur, maí 30, 2003 :::
 



Ég náði veii!!! Hefði aldrei trúað því, ekki frekar en Hallgerður bekkjarsystir mín sem sagði við mig: "Ég hefði aldrei trúað að þú myndir ná!"
Takk fyrir stuðninginn Hallgerður. Ég er loksins ekki lengur Markús 5.A...3.bekkur á næsta ári verður eini árgangurinn í skólanum sem hefur ekki aðeins upplifað mig í 5.A...ég er að fara að læra sögu í fyrsta skipti í 4 ár...merkilegt!

Var svo á úrslitum Sólbjarts í gær. 4.B vann og Hilmir Jensson varð Orator scholae. Óska 4.B til hamingju, og þá sérstaklega Hilmi sem var vel að titlinum kominn.

Ég er líka að hugsa um að eyða öllum mínum peningum í fyllerí í sumar. Ætlaði að leggja fyrir og bjóða ónefndri manneskju með mér í víking til e-r evrópskar stórborgar í ágúst. En þar sem ekki verður af því er ég að hugsa um að verða fullur í allt sumar, og reyna að upplifa ólíkt fyllerí í hvert skipti. Gera eins og forðum og rjúka e-a nóttina til Akureyrar, vakna e-n morguninn í Færeyjum, annan morgun í fangageymslum lögreglunnar og þar fram eftir götunum...Þetta verður skemmtilegt sumar...

HISTORY'S GREAT PERSONS RECONSIDERED by Tim Carvell

DR. LOUIS PASTEUR

What if Dr. Louis Pasteur hadn't really wanted to be a doctor in the first place? What if he'd really, really wanted to be a dancer, and his loving but stern father had forced him into medicine as an occupation? Sure, it's nice to have pasteurized milk and cheese and all—but is it really worth crushing young Lou Pasteur's dream of a life on the stage?



::: posted by Mao at 22:45,

þriðjudagur, maí 27, 2003 :::
 
...hmmm...helvítis mók og rugl. Er að vinna næturvaktir núna og það fer alveg með allan daginn. Maður getur ekkert farið út á kvöldin því maður þarf að mæta í vinnu. Maður sefur á morgnanna, og svo hefur maður svosem lítinn hvata til að fara fram úr á daginn. Leiðindalíf! Horfa á sjónvarp, hanga í tölvunni, kíkja kannski út á kaffihús með vinunum sem er alltaf eins. Tveir leggja í púkk fyrir kaffibolla og svo stija allir og reykja, tala um ekki neitt og fara svo heim. Ef ég myndi deyja á morgun hefði lífi mínu þá verið vel varið í þetta rugl? Varla. Engar tilbreytingar og eintóm leiðindi, ekkert nýtt. Svo er það eina sem ég hafði til að gefa lífinu smá lit farið. Þegar ég horfi aftur á öll góðu augnablikin síðustu mánuði, hugsa ég hvort þau voru þess virði að lenda í öllu þau rugli og því slæma sem fylgdi því...ég er í raun viss um það. Góðu augnablikin voru svo miklu fleiri og mikilvægari og gáfu manni í það minnsta ástæðu til að vakna á morgnanna...og jafnvel ástæðu til þass að njóta þess að fara ekki fram úr á morgnanna...en það eru greinilega ekki allir þessu sammála. Í sumra augum voru góðu augnablikin ekki þess virði að reyna að yfirstíga vandamálin...við því hef ég bara þetta að segja:

The course of true love never did run smooth;
(Lysander í Midsummer's Night Dream Skakespeares 1:1)

Ég held samt að ég sé alveg búinn að gefast upp á ástinni. Ef hún er í raun á veru til þá er hún ósanngjörn og röng.

Hmmm...þetta er einstaklega hressilegt hjá mér. Enda er ég einstaklega hress þessa stundina. Á morgun er úrslitastundin: Er lífi mínu algjörlega lokið eða kemst ég í næsta borð...svitna samt í hvert skipti sem síminn hringir og vona að það sé ekki MR að hringja og færa mér slæmu tíðindin. Ef ég næ þá verð ég sennilega mjög tæpur. Þetta hefur verið versta prófatörn sem ég hef gengið í gegnum. Varð veikur og lenti svo í óhöppum í einkalífinu sem rústuðu síðustu prófunum mínum...

En ef ég næ, þá horfir vonandi við betri tíð í sumar, en það er samt áð ýmsum þáttum og ákveðnum vinum (?)...gamla góða ruglið....

...ég ætti kannski bara að snúa við blaðinu, gleyma öllu og bæta mig sem manneskju...bara ef það væri hægt...

::: posted by Mao at 22:33,

mánudagur, maí 19, 2003 :::
 
The Dante's Inferno Test has sent you to Purgatory!
Here is how you matched up against all the levels:
LevelScore
Purgatory (Repenting Believers)Extreme
Level 1 - Limbo (Virtuous Non-Believers)Moderate
Level 2 (Lustful)Moderate
Level 3 (Gluttonous)Very Low
Level 4 (Prodigal and Avaricious)Very Low
Level 5 (Wrathful and Gloomy)Moderate
Level 6 - The City of Dis (Heretics)Very Low
Level 7 (Violent)Moderate
Level 8- the Malebolge (Fraudulent, Malicious, Panderers)Moderate
Level 9 - Cocytus (Treacherous)Low

Take the Dante's Inferno Test

::: posted by Mao at 21:02,

laugardagur, maí 17, 2003 :::
 


::: posted by Mao at 16:18,

miðvikudagur, maí 14, 2003 :::
 
24.000 manns deyja daglega úr hungri.
200.000 börn deyja vikulega vegna veikinda sem hægt væri að koma í veg fyrir.
Á hverri sekúndu eyðist meira en ekra af regnskógum jarðarinnar.
Meira en 10 milljón dýr sæta árlega illri meðferð eða eru yfirgefin.
43.000 konur deyja árlega úr brjóstakrabbameini.

Við getum öll haft áhrif á þetta með því að gefa u.þ.b. mínútu á dag þegar við förum á netið. Með því að fara á e-a neðangreindra heimasíða og smella á einn hnapp á forsíðunni, verk sem tekur bara nokkrar sekúndur, eruð þið að leggja ykkar af mörkum til þess að bæta þetta. Þetta kostar ykkur ekkert, þið þurfið ekki að skrá ykkur, bara að smella á einn hnapp og þá gefa fyrirtæki, t.d. ákveðið magn matar til hungraðra ( The Hunger site). Það er aðeins hægt að smella á hverri síðu einu sinni á dag úr hverri tölvu. En ef þið munið að gera þetta daglega (t.d. með því að setja eia síðuna sem homepage á tölvunni ykkar) þá breytir þetta miklu. T.d. hefur The Hunger Site gefið um 20 milljón kíló af mat til hungraðra á síðustu fjórum árum, allt vegna þess að nóg af fólki gaf sér smá tíma til að smella á einn hnapp.

The Hunger site

The Child Health site

The Rainforest site

The Animal Rescue site

The Breast Cancer site

Ég hef einnig sett linka á þessar síður hér til vinstri á blogginu mínu.

::: posted by Mao at 12:21,

mánudagur, apríl 28, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 09:22,

föstudagur, apríl 25, 2003 :::
 
Merkilegt.

China
China -
Debatably the most ancient and longstanding
cultures around, it is nowadays viewed as a
heavily populated but impovershed nation.


Positives:


Big.

Eclectic History.

Communist-Run (Control).

Worldwide Manufacturer.


Negatives:

Communist-Run (Bitterness).

Technologically Outdated.

Dissent.



Which Country of the World are You?
brought to you by Quizilla

::: posted by Mao at 09:04,

miðvikudagur, apríl 23, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 09:53,

þriðjudagur, apríl 22, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 09:10,

sunnudagur, apríl 20, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 15:52,

miðvikudagur, apríl 16, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 19:08,

þriðjudagur, apríl 15, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 17:15,

mánudagur, apríl 14, 2003 :::
 
Til hamingju með afmælið Ariana!



::: posted by Mao at 13:09,

föstudagur, apríl 11, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 14:22,

fimmtudagur, apríl 10, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 13:17,

 
Ég var í snúsnú í MR með 4.A. Það var gaman!

::: posted by Mao at 13:17,

miðvikudagur, apríl 09, 2003 :::
 
Af e-m ástæðum fæ ég bloggið mitt ekki til að birta meira en eitt post í einu...hmmmm....dururudururudurururudruruuuuu you're in th Twilight Zone...e-ð rugl, lítill svefn...aaarrrggg! Verð að fá hjálp frá Oddi, Oddur hjálp! Pearlman er að semja lag um mig!!! Ef það tengist því að vera umskorinn þá drep ég hann...


...æ, nei það er ljótt að drepa....

::: posted by Mao at 22:56,

 




::: posted by Mao at 14:44,

þriðjudagur, apríl 08, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 15:21,

sunnudagur, apríl 06, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 16:03,

laugardagur, apríl 05, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 18:03,

föstudagur, apríl 04, 2003 :::
 




::: posted by Mao at 22:46,

 
Ég hef ákveðið að setja verk uppáhaldslistamannsins míns, Edward Gorey, upp á blogginu mínu. Vona bara að lögfræðingarnir hans finni mig ekki. Allavega ætla ég að byrja á...



...og birta hana í bútum, eitt myndapar á dag.

::: posted by Mao at 22:44,

 
doubtful guest
The Doubtful Guest - You like to stir things up for
people don't you? You have quite a surreal
imagination...you would rather live in fantasy
than reality.


Which Edward Gorey Book Are You?
brought to you by Quizilla

::: posted by Mao at 22:41,

þriðjudagur, apríl 01, 2003 :::
 


Ég vildi að ég gæti farið viku aftur í tímann og bara verið þar :(

::: posted by Mao at 21:50,

 
:(

::: posted by Mao at 12:31,

 
Ég veit ekki hvort það kemur e-m á óvart, en hingað til hefur Formaðurinn verið skráður og nokkuð dyggur stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins (Nú fer fólk að hata mig). Ástæður þess voru hugsjónir mínar um frelsi einstaklingsins, lágmarksafskipti ríksinsins af þegnum sínum og það að ríkið ætti ekki heima í fyrirtækja- og verslunarrekstri. En ýmsir atburðir undanfarið hafa gert mig tvístiga. Ég er orðinn nokkuð viss um það að það séu mikilvægari málefni sem ég ætti og ætla að setja ofar þessum hugsjónum mínum.

*Af starfi mínu á sambýli fyrir fatlaða hef ég kynnst af eigin raun bágri aðstöðu sem öryrkjar búa við í okkar "velferðarríki". Og sömu sögu er sennilega að segja af öldruðum. Ekki gerir ríkisstjórnin mikið til að bæta úr því.

*Vanhugsaðar og fljótfærnislegar ákvarðanir ríkissins um virkjanaframkvæmdir og eyðileggingu þjóðargersema.

*Og dropinn sem fyllti mælinn. Einharður stuðningur ríkisstjórnarinnar við innrás hinnar sjálfskipuðu alheimslöggu inn í Írak. Ég get ekki stutt stjórnmálaflokk sem finnst það réttlætanlegt að leysa deilur með ofbeldi og morðum. Morð/dráp eru í mínum huga aldrei réttlætanleg, sama í hversu "göfugum" tilgangi eða litlu magni þau eru. Ég syrgi jafnt eina manneskju sem félli í þessari innrás eða þúsund. Ein saklaus manneskja sem fellur fyrir hendi "boðbera frelsisins" er einni manneskju of mikið! Og frelsi hvaða einstaklinga verndast af þessari innrás? Í það minnsta ekki frelsi þeirra milljóna sem búa við þá frelsisskerðingu að geta ekki búið í sínu heimalandi í stöðugum ótta við að ofstoppafullir stríðsherrar úr fjarlægum löndum myrði þá af engri sök. Ég skil að ríkisstjórnin vilji vernda viðskiptahagsmuni þjóðarinnar, en stundum er tími fyrir litla manninn að standa upp gegn stóra manninum og segja "Nei! Þetta er nóg!". Því það eru milljónir lítilla manna á barmi hörmungar, sem hafa ekki nokkuð meira illt sér til unnið heldur en við.

Ef "frelsi einstaklingsins" felst í að skerða frelsi annara einstaklinga og í réttlætingu á morðum, þá getur það ekki verið mín hugsjón.
Mannslíf, hvort sem það er sómasamlegt líf fyrir öryrkja og aldraða á Íslandi eða bara líf yfir höfuð fyrir saklaust fólk í Írak, hlýtur að vera mikilvægara en nokkur hugsjón.


::: posted by Mao at 12:15,

sunnudagur, mars 30, 2003 :::
 
Litli engillinn minn er farinn :(

::: posted by Mao at 19:11,

laugardagur, mars 29, 2003 :::
 


Mig langar í litla engilinn minn...

::: posted by Mao at 21:46,

 
Once upon a midnight dreary, while I pondered weak and weary,
Over many a quaint and curious volume of forgotten lore,
While I nodded, nearly napping, suddenly there came a tapping,
As of some one gently rapping, rapping at my chamber door.
`'Tis some visitor,' I muttered, `tapping at my chamber door -
Only this, and nothing more.'

Ah, distinctly I remember it was in the bleak December,
And each separate dying ember wrought its ghost upon the floor.
Eagerly I wished the morrow; - vainly I had sought to borrow
From my books surcease of sorrow - sorrow for the lost Lenore -
For the rare and radiant maiden whom the angels named Lenore -
Nameless here for evermore.

And the silken sad uncertain rustling of each purple curtain
Thrilled me - filled me with fantastic terrors never felt before;
So that now, to still the beating of my heart, I stood repeating
`'Tis some visitor entreating entrance at my chamber door -
Some late visitor entreating entrance at my chamber door; -
This it is, and nothing more,'

Presently my heart grew stronger; hesitating then no longer,
`Sir,' said I, `or Madam, truly your forgiveness I implore;
But the fact is I was napping, and so gently you came rapping,
And so faintly you came tapping, tapping at my chamber door,
That I scarce was sure I heard you' - here I opened wide the door; -
Darkness there, and nothing more.

Deep into that darkness peering, long I stood there wondering, fearing,
Doubting, dreaming dreams no mortal ever dared to dream to dream before
But the silence was unbroken, and the darkness gave no token,
And the only word there spoken was the whispered word, `Lenore!'
This I whispered, and an echo murmured back the word, `Lenore!'
Merely this and nothing more.

Back into the chamber turning, all my soul within me burning,
Soon again I heard a tapping somewhat louder than before.
`Surely,' said I, `surely that is something at my window lattice;
Let me see then, what thereat is, and this mystery explore -
Let my heart be still a moment and this mystery explore; -
'Tis the wind and nothing more!'

Open here I flung the shutter, when, with many a flirt and flutter,
In there stepped a stately raven of the saintly days of yore.
Not the least obeisance made he; not an instant stopped or stayed he;
But, with mien of lord or lady, perched above my chamber door -
Perched upon a bust of Pallas just above my chamber door -
Perched, and sat, and nothing more.

Then this ebony bird beguiling my sad fancy into smiling,
By the grave and stern decorum of the countenance it wore,
`Though thy crest be shorn and shaven, thou,' I said, `art sure no craven.
Ghastly grim and ancient raven wandering from the nightly shore -
Tell me what thy lordly name is on the Night's Plutonian shore!'
Quoth the raven, `Nevermore.'

Much I marvelled this ungainly fowl to hear discourse so plainly,
Thouhg its answer little meaning - little relevancy bore;
For we cannot help agreeing that no living human being
Ever yet was blessed with seeing bird above his chamber door -
Bird or beast above the sculptured bust above his chamber door,
With such name as `Nevermore.'

But the raven, sitting lonely on the placid bust, spoke only,
That one word, as if his soul in that one word he did outpour.
Nothing further then he uttered - not a feather then he fluttered -
Till I scarcely more than muttered `Other friends have flown before -
On the morrow will he leave me, as my hopes have flown before.'
Then the bird said, `Nevermore.'

Startled at the stillness broken by reply so aptly spoken,
`Doubtless,' said I, `what it utters is its only stock and store,
Caught from some unhappy master whom unmerciful disaster
Followed fast and followed faster till his songs one burden bore -
Till the dirges of his hope that melancholy burden bore
Of "Never-nevermore."'

But the raven still beguiling all my sad soul into smiling,
Straight I wheeled a cushioned seat in front of bird and bust and door;
Then, upon the velvet sinking, I betook myself to linking
Fancy unto fancy, thinking what this ominous bird of yore -
What this grim, ungainly, gaunt, and ominous bird of yore
Meant in croaking `Nevermore.'

This I sat engaged in guessing, but no syllable expressing
To the fowl whose fiery eyes now burned into my bosom's core;
This and more I sat divining, with my head at ease reclining
On the cushion's velvet violet lining that the lamp-light gloated o'er,
But whose velvet violet lining with the lamp-light gloating o'er,
She shall press, ah, nevermore!

Then, methought, the air grew denser, perfumed from an unseen censer
Swung by angels whose faint foot-falls tinkled on the tufted floor.
`Wretch,' I cried, `thy God hath lent thee - by these angels he has sent thee
Respite - respite and nepenthe from tha memories of Lenore!
Quaff, oh quaff this kind nepenthe, and forget this lost Lenore!'
Quoth the raven, `Nevermore.'

`Prophet!' said I, `thing of evil! - prophet still, if bird or devil! -
Whether tempter sent, or whether tempest tossed thee here ashore,
Desolate yet all undaunted, on this desert land enchanted -
On this home by horror haunted - tell me truly, I implore -
Is there - is there balm in Gilead? - tell me - tell me, I implore!'
Quoth the raven, `Nevermore.'

`Prophet!' said I, `thing of evil! - prophet still, if bird or devil!
By that Heaven that bends above us - by that God we both adore -
Tell this soul with sorrow laden if, within the distant Aidenn,
It shall clasp a sainted maiden whom the angels named Lenore -
Clasp a rare and radiant maiden, whom the angels named Lenore?'
Quoth the raven, `Nevermore.'

`Be that word our sign of parting, bird or fiend!' I shrieked upstarting -
`Get thee back into the tempest and the Night's Plutonian shore!
Leave no black plume as a token of that lie thy soul hath spoken!
Leave my loneliness unbroken! - quit the bust above my door!
Take thy beak from out my heart, and take tha form from off my door!'
Quoth the raven, `Nevermore.'

And the raven, never flitting, still is sitting, still is sitting
On the pallid bust of Pallas just above my chamber door;
And his eyes have all the seeming of a demon's that is dreaming,
And the lamp-light o'er him streaming throws his shadow on the floor;
And my soul from out that shadow that lies floating on the floor
Shall be lifted - nevermore!


::: posted by Mao at 21:04,

 


::: posted by Mao at 21:01,

miðvikudagur, mars 12, 2003 :::
 




Ég er Kolbeinn latínukennari!
Þú ert rólegur, sanngjarn en talar
jafnframt lágt. Þú kannt vel að meta klassískar bókmenntir. Gull af manni.



Taktu "Hvaða kennari 4.B ert þú?" prófið






::: posted by Mao at 16:04,

föstudagur, mars 07, 2003 :::
 
Formaðurinn spillir bókarendinum

Í dag er það Hringadróttinssaga...á norsku! Ringenes Herre:

Han trakk pusten dypt. ,,Ja, så er jeg hjemme igjen, da," sa han.

Djöfull...! Fróði deyr!!!

::: posted by Mao at 15:44,

 

I am



Find out which Garbage Pail Kid you are!



::: posted by Mao at 15:39,


Powered by BloggerWeblog Commenting by HaloScan.com